Já nýtt ár er gengið í garð og verður sjálfsagt ennþá betra en hið fyrra (eins og öll árin þar á undan) sem þýðir að 21. árið hlýtur að verða ansi magnað, enda 21 ár í bígerð og mikið verið vandað til!
En það er í tísku að líta yfir farinn veg og best að vinda sér bara í það!
Hver man ekki eftir...
...árshátíðarpartíinu?
...þegar Heiða stakk af til Danmerkur?
...þegar Skarpi safnaði skeggi?
...Fyrstu NinjaFish tónleikunum?
...MH göngunum?
...Heimspekilegu umræðunum?
...Dimmiteringarmyndunum? (þar sem grannir og glæsilegir gerðust sveittir og ógeðslegir)
...Þegar við útskrifuðumst (þeir sem ekki útskrifuðust eru beðnir afsökunar á þessari ónærgætni, kvartanir er hægt að senda á væl@mérerdrullusama.is)
...Tvítugsafmæli Bigga og Magga? (Þar sem Bjarni Freyr drakk í fyrsta skipti, var með risastóra svitabletti undir höndunum (,,ég hellti á mig....báðum megin!"
og fékk einkadans frá kalli í rauðum flauelsjakkafötum...
...Þegar Katrín stakk af til Frakklands?
...Þegar Biggi og Hildur fóru til Evrópu?
...Sumarpartýinu hjá Magga? (Þar sem Alex og Jökull klifruðu upp Tótemsúlutréð í garðinum hjá Magga)
...Sumarbústaðaferðinni?
...Þegar NinjaFish spilaði á Gauknum?
...Þegar hluti úr NinjaFish spilaði á Ljósanótt með Ramses
...Þegar Biggi fluttist í einangrun í Borgarnesi?
...Þegar Biggi gerðist lúði (aftur)?
...Þegar Maggi stakk af til Costa Rika?
...Þegar Skarpi og Helga útskrifuðust?
...'87 bekkjarreunioninu?
...Þegar Biggi gerðist dinnerpíanisti?
Hlutir sem eru bestir gleymdir og grafnir:
Búningurinn þeirra Skarpa og Dukes á tónleikunum í Gauknum
Ákveðin dramamál
Hárið á Bigga í vor
Hlutir sem hægt er að hlakka til á næsta ári:
Tónleikar NinjaFish
Útskrift Bigga í vor (úr tónlistarskólanum)
Útlandaferðir
Djamm
Jáhh nóg búið að gera á síðasta árinu og nóg eftir fyrir það næsta
Ef þið munið eftir einhverjum atriðum sem vanta á þessa lista, endilega tjáið ykkur
Gleðilegt nýtt ár!! 
NýársBumsi